Stefnumótaappið Smitten hefur fjarlægt prófíl Framsóknarflokksins í Reykjavík sem birtist á appinu fyrr í vikunni. Prófíllinn var hluti af kosningabaráttu flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
„Við viðurkennum að okkur fannst nálgunin bæði frumleg og skemmtileg og skiljum vel af hverju hún hefur vakið athygli.“ segir Davíð Símonarson, forstjóri Smitten.
„Smitten er hinsvegar vettvangur fyrir fólk sem leitar að tengingum við annað fólk, og notendur okkar geta treyst því að samskipti á Smitten séu raunveruleg og ekki hluti af skipulagðri herferð. Þetta er einfaldlega ekki rétti staðurinn fyrir kosningarbaráttu, óháð því hvaða flokkur á í hlut“
Prófíllinn var fjarlægður samkvæmt skilmálum Smitten, þar sem appið er ætlað einstaklingum en ekki skipulögðum herferðum eða stofnunum.
Frá upphafi hefur það verið stefna Smitten að appið sé laust við bæði kostaðar auglýsingar og annars konar skipulagða kynningarstarfsemi, hvort sem um er að ræða fyrirtæki, stjórnmál eða aðra hagsmunaaðila.
Smitten mun áfram leggja áherslu á að byggja upp vettvang þar sem fólk getur tengst á auðveldan, skemmtilegan og traustan hátt.
Davíð bætir við að einstaklingar í flokknum séu þó velkomnir á appið. „Frambjóðendur Framsóknar sem eru einhleypir og leita að einlægri tengingu eru velkomnir á Smitten, eins og allir aðrir”
Um Smitten Smitten er íslenskt stefnumótaforrit sem starfar á Íslandi, í Svíþjóð, Noregi og Danmörku.
Tengiliður: Sylvía Clothier Rudolfsdottir [sylvia@smitten.co]



